Viðhorf til heilbrigðiskerfisins

Heim / Fréttir / Viðhorf til heilbrigðiskerfisins

Í Maskínukönnun, sem framkvæmd var í ágúst var spurt um viðhorf fólks til heilbrigðiskerfisins. 55% aðspurðra taldi heilbrigðiskerfið standa veikum fólkum en rösklega 19% taldi það standa styrkum fótum. Þegar niðurstöðurnar eru rýndar eftir stjórnmálaskoðun sést að kjósendur Flokks fólksins og Pírata telja heilbrigðiskerfið standa veikustum fótum en hærra hlutfall kjósenda Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks telja það standi styrkum fótum.

Rúmlega 55% höfðu miklar áhyggjur af því að Landspítalinn réði ekki við álag vegna fjölda sjúklinga með COVID-19 en 18,5% höfðu litlar áhyggjur af því. Konur hafa meiri áhyggjur af álagi á spítalann en karlar. Þá hafa kjósendur Flokks fólksins og Pírata mestar áhyggjur af álagi á spítalann en kjósendur Sjálfstæðisflokks minnstar.

Svarendur könnunar voru 822 talsins, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem er dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu. Svarendur eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 13. til 23. ágúst 2021.

Skýrsluna í heild sinni má nálgast hér sem pdf.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir