Í síðustu Maskínukönnun fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi viðræður við ESB sem var lögð fyrir 28.ágúst ætla 50,4% að segja já en 49,6% nei. Munurinn er innan vikmarka og því ómögulegt að segja hvor fylkingin verður hlutskarpari.
Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Einnig fyrir lagskipt slembiúrtak úr Þjóðskrá. Alls voru svarendur 3.274 en þeir eru alls staðar að af landinu á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram 28. ágúst 2026.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem kyn, aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla. Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

