Samfylkingin áfram stærsti flokkurinn

Home / Fréttir / Samfylkingin áfram stærsti flokkurinn

Litlar breytingar er að sjá á fylgi flokkanna á landsvísu í Maskínukönnun október mánaðar. Samfylking er áfram stærati flokkurinn og mælist nú með tæplega 29% fylgi sem er litlu meira en í september. Sjálfstæðisflokkurinn kemur þar á eftir með 22% fylgi en það er 3 prósentustigum minna fylgi en flokkurinn mældist með í síðasta mánuði. Nánast engar breytingar er hægt að nema á fylgi annarra flokka á milli mánaða.

Miðflokkurinn mælist með rúm 13% og þar á eftir Viðreisn með rúm 11%.

Ítarlegri niðurstöður má finn í pdf-skýrslu hér og í Mælaborði Maskínu

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.791, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar.

Könnunin fór fram dagana 18. til 23. september og 2. til 7. október 2026. Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.