Meðmæling Maskínu 2026 hefur verið veitt þeim fyrirtækjum sem njóta mestrar velvildar og trausts meðal viðskiptavina í sínum flokki. Viðurkenningin byggir á niðurstöðum umfangsmikillar neytendarannsóknar Maskínu þar sem Íslendingar meta fyrirtæki út frá eigin reynslu og því hversu líklegt er að þeir mæli með þeim við aðra.
Meðmæling Maskínu hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn mikilvægasti mælikvarðinn á styrk vörumerkja og upplifun viðskiptavina á Íslandi. Fyrirtækin sem hljóta viðurkenninguna árið 2026 eiga það sameiginlegt að hafa veitt viðskiptavinum sínum framúrskarandi upplifun sem endurspeglast í sterkum vilja til að mæla með þjónustu þeirra.
Handhafar Meðmælingar Maskínu 2026
Viðurkenningar voru veittar í eftirfarandi 12 flokkum:
| Flokkur | Sigurvegari |
| Almannaþjónusta | Dropp |
| Áskriftarþjónusta | Spotify |
| Bifreiðaumboð | Tesla á Íslandi⭐ |
| Dagsverslun (FMCG) | Fjarðarkaup |
| Fjarskiptafyrirtæki | Hringdu |
| Fjármála- og tryggingastarfsemi | Indó |
| Framleiðslufyrirtæki | Arna |
| Líkamsræktarstöðvar | Hreyfing |
| Orkufyrirtæki | Costco (bensínstöð) |
| Samgönguþjónusta | Bændaferðir |
| Sérverslun (SMCG) | Blush |
| Vefþjónusta | Noona |
Tesla með hæstu einkunn allra fyrirtækja
Vert er að vekja athygli á að Tesla á Íslandi stóð ekki aðeins efst meðal bifreiðaumboða heldur náði jafnframt hæstu niðurstöðu allra fyrirtækja sem mæld voru í rannsókninni. Fyrirtækið var því efst á heildarlista Meðmælingar Maskínu 2026.
Umfangsmesta samanburðarmæling sinnar tegundar
Í rannsókninni voru 184 fyrirtæki metin úr ýmsum greinum atvinnulífsins. Með því skapast einstakt tækifæri til að bera saman frammistöðu fyrirtækja innan hvers markaðar og greina styrkleika og tækifæri til umbóta út frá sjónarhorni viðskiptavina.

Almannaþjónusta
Aðalskoðun, DHL, Dropp, Endurvinnslan, FedEx, Frumherji, Íslenska gámafélagið, Kubbur, Pósturinn, Securitas, Sorpa, Terra, Tékkland, TVG-Zimsen, Wolt og Öryggismiðstöðin.
Áskriftarþjónusta
Amazon Prime, Audible, Disney+, HBO Max, Netflix, Síminn Sport, Sjónvarp Símans, Sjónvarpsþjónusta Símans, Sjónvarpsþjónusta Sýnar, Spotify, Storytel, Sýn (áður Stöð 2), Sýn Sport og Viaplay.
Bifreiðaumboð
Askja, BL, Brimborg, Hekla, Suzuki á Íslandi, Tesla á Íslandi og Toyota á Íslandi.
Dagsverslun (FMCG)
Apótekarinn, Asos, Boozt, Bónus, Costco, Fjarðarkaup, Hagkaup, Kringlan, Krónan, Lyf og Heilsa, Lyfja, Lyfjaval, Lyfjaver, Melabúðin, Nettó, Prís, Santé, Smáralind, Smáríkið, Temu, Vefverslun Hagkaups, Vefverslun Krónunnar og Vínbúðin.
Fjarskiptafyrirtæki
Hringdu, Nova, Síminn og Sýn.
Fjármála- og tryggingastarfsemi
Almenni-Lífeyrissjóður, Arion banki, Auður, Aur, Birta lífeyrissjóður, Brú lífeyrissjóður, Ergo, Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Gildi lífeyrissjóður, HMS, Indó, Íslandsbanki, Landsbankinn, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, LSR, Lykill, Menntasjóður námsmanna, Netgíró, Pei, Síminn Pay, Sjóvá, Stapi lífeyrissjóður, TM, VÍS og Vörður.
Framleiðslufyrirtæki
Ali, Arna, Bakarameistarinn, Brauð & Co, Brikk, CCEP, Freyja, Frón, Góa, Gæðabakstur, Holta kjúklingur, Kaffitár, Kjarnafæði, Kristjánsbakarí, Lýsi, MS, Myllan, Norðlenska, Nói Síríus, Ora, SS, Stjörnugrís, Sölufélag garðyrkjumanna, Te & Kaffi og Ölgerðin.
Líkamsræktarstöðvar
Hreyfing, Katla Fitness, Sporthúsið og World Class.
Orkufyrirtæki
Atlantsolía, Atlantsorka, Costco bensínstöð, HS Orka, HS Veitur, N1, N1 Rafmagn, Norðurorka, Olís, ON, Orkan, Orkubú Vestfjarða, Orkusalan, ÓB, RARIK, Straumlind og Veitur.
Samgönguþjónusta
Bolt, Bændaferðir, EasyJet, Heimsferðir, Hopp, Hreyfill, Icelandair, Icelandair VITA, Norwegian Air, Strætó, Úrval Útsýn og Wizz Air.
Sérverslun (SMCG)
A4, Bauhaus, Blómaval, Blush, Byko, Eirberg, Elko, Flügger, Garðheimar, Heimilistæki, Húsasmiðjan, Húsgagnahöllin, IKEA, Ilva, JYSK, Múrbúðin, Ormsson, Penninn Eymundsson, Rafha, Sérefni, Skór.is, Slippfélagið og Útilíf.
Vefþjónusta
Abler, Aha, Alfreð, Bland, Dineout, Dohop, Heilsuvera, Hópkaup, Ísland.is, Meniga, Noona, Skatturinn og Tix.
Maskína óskar öllum handhöfum Meðmælingar Maskínu 2026 innilega til hamingju með árangurinn.

