Talsverðar breytingar á fylgi flokkanna

Heim / Fréttir / Talsverðar breytingar á fylgi flokkanna

Ný Maskínukönnun sýnir talsverðar breytingar á fylgi flokkana og samkvæmt henni mun ríkisstjórnin ekki halda meirihluta sínum. Bæði Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn tapa fylgi en Framsóknarflokkurinn bætir örlítið við sig frá síðustu mælingu Maskínu. Mest bæta Samfylking og Píratar við sig en samkvæmt þessum tölum er Samfylking næststærsti flokkur landsins með 14,6% fylgi og fast á hæla þeirra koma Píratar með 13,3% fylgi. Viðreisn bætir við sig hálfu prósentustigi og Miðflokkur bætir einnig við sig og brýtur 5% múrinn. Hann mælist nú með 5,5% fylgi.  Sósalistaflokkurinn, Flokkur fólksins og Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn mælast minni núna en í síðustu Maskínukönnun sem birtist í síðustu viku.

Það er greinilegt að talsverð hreyfing er á fylginu samkvæmt þessu. Hér má sjá niðustöðurnar í pdf skýrslu.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 2921 talsins. Svarendur eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 8. til 13. september 2021.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir