Aldrei færri neikvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum eins og nú

Heim / Fréttir / Aldrei færri neikvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum eins og nú

Eftir fáa sem enga ferðamenn á tímum Covid-19 hefur ferðaþjónustan heldur betur vaknað til lífsins og því jafnvel fleygt fram að Ísland sé uppselt. Ferðamenn streyma til landsins og kynna sér bæði náttúru Íslands sem og borgarlífið. Maskína hefur frá árinu 2015 spurt um viðhorf landsmanna til erlendra ferðamanna.

Neikvæðum hefur fækkað allt frá árinu 2016
Þeim sem eru neikvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi hefur fækkað jafnt og þétt frá árinu 2016 þegar 11–12% sögðust neikvæð. Í ár eru það 6–7% landsmanna sem eru neikvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum.

Íbúar höfuðborgarsvæðisins jákvæðari
Hlutfall þeirra sem eru jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum er mjög sambærilegt hlutfalli síðasta árs og mælist nú 75–76%. Karlar eru nokkru jákvæðari en konur auk þess sem höfuðborgarbúar eru jákvæðari en landsbyggðarbúar.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.069, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 20. til 25. júlí 2022.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir