Skiptar skoðanir á framlagi Íslands í Eurovison

Heim / Fréttir / Skiptar skoðanir á framlagi Íslands í Eurovison

Skiptar skoðanir eru á framlagi Íslands í Eurovision sem fram fer í Malmö í maí næstkomandi en þannig voru rétt um þriðjungur landsmanna ánægð með lagið Scared of Heights í flutningu Heru Bjarkar samanborið við um 39% sem voru óánægð. Þá vildu 42% landsmanna að lag Heru Bjarkar yrði valið sem framlag Íslands í lokaeinvígi Söngvakeppninnar og sömuleiðis um 42% sem vilja að Ísland taki ekki þátt í Eurovison í ár.

Ítarlegri skýrslu má finna með því að smella hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 983, en þeir eru alls staðar að af landinu 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 6. til 12. mars 2024.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir