Rafbílaeigendur andvígir nýju kílómetragjaldi

Heim / Fréttir / Rafbílaeigendur andvígir nýju kílómetragjaldi

Nýlega spurði Maskína landsmenn um viðhorf þeirra til álagningu kílómetragjalds á rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla sem tóku gildi um síðustu áramót. Þar kom í ljós að helmingur landsmanna er hlynntur gjaldtökunni en um 28% því andvíg og þegar niðurstöður eru skoðaðar eftir bakgrunni kemur í ljós að þeir sem hafa rafbíl til umráða eru andvígari gjaldinu en aðrir. Þannig eru 49% þeirra andvíg á meðan hlutfallið er 24-28% hjá umráðamönnum bíla sem nýta jarðefnaeldsneyti að öllu leyti eða hluta.

Ítarlegri skýrslu má finna með því að smella hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.002, en þeir eru alls staðar að af landinu 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 23. til 27. febrúar 2024.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir