Íslendingar mjákvæðir gagnvart köttum

Heim / Fréttir / Íslendingar mjákvæðir gagnvart köttum

Í kjölfar þess að Akureyrarbær tók ákvörðun um að banna lausagöngu katta utandyra spurði Maskína um hvort fólki þætti að banna ætti lausagöngu katta utandyra í þeirra sveitarfélagi.

65% svarenda í könnuninni vildi leyfa lausa ketti utandyra en 35% banna þá. Fleiri karlar en konur vildu banna lausa ketti utandyra eða rúmlega 40% karla en 28% kvenna voru á sama máli. Yngri svarendur voru hlynntari því að leyfa lausa ketti en 76% í yngsta aldurshópnum, á bilinu 18-29, vildi leyfa það en í elsta svarendahópnum, 60 ára og eldri, voru talsvert færri eða rúmlega 50% sömu skoðunar.

Talsverður munur var á viðhorfi fólks eftir stjórnmálaskoðun. Tæplega 80% kjósenda Pírata og Samfylkingar vildu leyfa lausa ketti en aðeins rétt rúmlega helmingu kjósenda Miðflokks og Sjálfstæðisflokks voru á sama máli.

Ítarlegri niðurstöður má finna hér í pdf skýrslu.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 810 talsins af öllu landinu. Svarendur eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 5. til 16. nóvember 2021.
Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir