Framsókn sækir hart að Sjálfstæðisflokknum

Heim / Fréttir / Framsókn sækir hart að Sjálfstæðisflokknum

Maskína mældi fylgi stjórnmálaflokkanna í nýlegri könnun. Einhverjar breytingar má sjá á fylginu frá fyrri mælingum og frá niðurstöðum kosninga þar sem sumir eru að bæta við sig á meðan aðrir flokkar gefa eftir í fylgi.

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur en Framsókn kemur fast á hæla hans
Sjálfstæðisflokkurinn er ennþá stærsti flokkurinn samkvæmt niðurstöðunum og mælist nú með um 20% fylgi sem er rúmlega 4 prósentustigum minna en kjörfylgi flokksins var í kosningum í haust. Framsóknarflokkurinn mælist nú með tæplega 18% fylgi sem er litlu meira en flokkurinn fékk í nýliðnum kosningum. Fylgi Framsóknarflokksins nálgast því samherja þeirra í ríkisstjórn, í Sjálfstæðisflokknum, óðfluga.

Píratar og Samfylking talsvert yfir kjörfylgi
Píratar mælast núna þriðji stærsti flokkurinn á Alþingi með 13,5% fylgi sem er mun meira en þeir fengu upp úr kjörkössunum þegar flokkurinn endaði með 8,6% atkvæða. Sömu sögu má segja um Samfylkinguna sem mælist nú með 12,3% fylgi

Flokkur forsætisráðherra sá fimmti stærsti
Flokkur forsætisráherra mælist með 11,2% í janúarmælingu Maskínu sem er örlítið undir kjörfylgi. Þess ber þó að geta að í niðurstöðum kosninga voru Vinstri græn þriðji stærsti flokkurinn en eru nú sá fimmti stærsti í þessari mælingu.

Viðreisn og Flokkur fólksins á svipuðu reki
Fylgi Viðreisnar mælist núna 9,2% sem er örlítið meira en flokkurinn uppskar í kosningum þegar þau fengu 8,3% fylgi. Fylgi Flokks fólksins er á mjög svipuðu reki og það var í kosningum en þau mælast nú með 8,5% fylgi

Sósalistar og Miðflokkur ná ekki 5%
Hvorki Sólíastista né Miðflokkur nær að brjóta 5% múrinnog mælast nú báðir með 3,7% fylgi og hefur hvorugur flokkurinn mælst minni í mælingum Maskínu.

Ítarlegri niðurstöður má finna hér í pdf skýrslu.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1548 talsins af öllu landinu. Svarendur eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 6. til 19. janúar 2022.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

 

Aðrar fréttir