Fylgi Framsóknar, Samfylkingarinnar og Pírata í einum hnapp – Sjálfstæðisflokkurinn áfram stærsti flokkurinn

Heim / Fréttir / Fylgi Framsóknar, Samfylkingarinnar og Pírata í einum hnapp – Sjálfstæðisflokkurinn áfram stærsti flokkurinn

Maskína birtir mánaðarlega fylgi stjórnmálaflokkanna á landsvísu og hér liggja fyrir niðurstöður mælingar sem framkvæmd var í október 2022.

Sjálfstæðisflokkurinn áfram stærstur
Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú, sem og áður, stærstur flokkanna sem bjóða fram á landsvísu með rétt tæpt 23% fylgi. Flokkurinn bætir við sig 2 prósentustigum frá Maskínukönnun í október sl. en er þrátt fyrir það aðeins undir kjörfylgi sínu í kosningunum síðustu.

Samfylking og Píratar draga á Framsókn
í Maskínukönnun septembermánaðar kom í ljós að fylgi Framsóknar hefði dalað frá fyrri könnunum. Í þessari könnun er staðan sú að Framsókn, Samfylking og Píratar mælast öll með 14–15% fylgi. Það er töluvert yfir kjörfylgi bæði Samfylkingar og Píratar sem uppskáru töluvert minna í kosningunum, þ.e. Píratar 8–9% og Samfylkingin um 10%. Það er annað upp á teningnum hjá Framsókn sem mælist nú undir kjörfylgi sínu, eins og reyndar báðir samstarfsflokkar hans í ríkisstjórn.

Vinstri græn gefa örlítið eftir
Fylgi Vinstri grænna hefur verið nokkuð undir kjörfylgi flokksins í undanförnum mælingum og hefur flokkurinn mælst með fylgi á bilinu 7–9%. Í Maskínukönnun októbermánaðar mælist þessi flokkur forsætisráðherra með innan við 8% sem er 5 prósentustigum minna en flokkurinn fékk í kosningunum þegar hann uppskar 12–13% atkvæða.

Fylgi Viðreisnar aftur undir 10% múrinn
í september braut Viðreisn 10% fylgis-múrinn í Maskínukönnun en nú er fylgi flokksins 9–10%. Það er nokkru meira fylgi en flokkurinn fékk í síðustu kosningum sem var rúm 8%.

Fylgi Sósíalista stöðugt
Fylgi Sósíalistaflokksins hefur verið um eða yfir 7% í undanförnum könnunum Maskínu. Flokkurinn mælist núna með 6–7% sem er ríflega 2 prósentustigum meira en flokkurinn fékk upp úr kjörkössunum í síðustu kosningum.

Sáralitlar breytingar á fylgi Flokks fólksins og Miðflokksins
Bæði Flokkur fólksins og Miðflokkurinn eru á svipuðum slóðum og í fyrri mælingum Maskínu og er fylgi þeirra 4–5%. Það er nokkuð svipað og Miðflokkurinn uppskar í síðustu kosningum en Flokkur fólksins hefar týnt hátt í helmingi síns fylgis frá kosningunum þegar hann fékk tæp 9% atkvæða.

Ítarlegri niðurstöður má finna í PDF-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.638, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 30. september til 17. október 2022.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir