Fylgi flokka í júní

Heim / Fréttir / Fylgi flokka í júní

Maskína mældi fylgi stjórnmálaflokka í júnímánuði. Litlar breytingar voru á fylginu frá fyrri mælingum, mismiklar þó, en flestar innan skekkjumarka.

Framsóknarflokkurinn bætir við sig fylgi

Framsóknarflokkurinn bætir við sig rúmum þremur prósentustigum í fylgi frá síðustu mælingu Maskínu í maí og mælist nú með rúm 18%. Sjálfstæðisflokkurinn bætir sömuleiðis við sig en lítillega þó, og er nú með rúm 19%. Vinstri græn halda í sitt fylgi sem mælast líkt og í maímánuði eða á milli 8-9%.

Fylgi Viðreisnar stöðugt en fylgi Pírata og Samfylkingar lækkar

Fylgi Viðreisnar helst jafnframt tiltölulega stöðugt milli mælinga, eða tæp 9%. Píratar mælast með 14-15% fylgi og minnkar um eitt prósentustig frá því í maí. Þá fellur fylgi Samfylkingar um rúm tvö prósentustig og er nú á milli 13-14% sem er eins og í mælingu Maskínu í apríl.

Sósíalistar og Flokkur fólksins á svipuðum slóðum

Flokkur fólksins mælist með rúmt 6% fylgi sem er lækkun um eitt prósentustig. Sósíalistaflokkurinn mælist sömuleiðis með rúm 6% fylgi og eykst fylgið um rúmt prósentustig milli mælinga. Miðflokkurinn mælist minnstur flokkanna með tæp 5%.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.658, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 1. til 23. júní 2022.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir