Fylgi flokka í júlí

Heim / Fréttir / Fylgi flokka í júlí

Fylgi stjórnarinnar fellur ef gengið yrði til kosninga í dag frá því í júní-könnun Maskínu. Tæplega 21% myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, um 14% Vinstrihreyfinguna – grænt framboð og tæplega 10% Framsóknarflokkinn. Ánægja með störf ríkisstjórnarinnar fellur einnig og er þetta fjórði mánuðurinn í röð þar sem hún gerir það, stendur nú í tæplega 40%.  Á meðan ánægja með störf stjórnarandstöðu hækkar örlítið og er nú um 16%.

Nánar má lesa um helstu niðurstöður könnunarinanr á visir.is ítarlegri niðurstöður má svo nálgast hér í pdf. skýrslu.

Svarendur könnunar voru 847 talsins, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem er dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu. Svarendur eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 13. til 26. júlí 2021.

Aðrar fréttir