Fleiri hlynntir en andvígir aðskilnaði ríkis og kirkju

Heim / Fréttir / Fleiri hlynntir en andvígir aðskilnaði ríkis og kirkju

Mun fleiri Íslendingar eru hlynntir en andvígir aðskilnaði ríkis og kirkju samkvæmt könnun Maskínu. Rúmlega 55% eru hlynnt aðskilnaði á meðan að hátt í 22% eru andvíg. Þá eru tæplega 23% í meðallagi hlynnt eða andvíg aðskilnaði ríkis og kirkju. Maskína spurði síðast um afstöðu til aðskilnaðar ríkis og kirkju árið 2015, en ekki er marktæk breyting á afstöðunni milli 2015 og 2018.

 

Miklu munar á afstöðu fólks eftir aldri, en yngri aldurshópar eru mun hlynntari aðskilnaði ríkis og kirkju en þeir sem eldri eru. Þannig eru rúmlega 75% svarenda á aldrinum 18 til 29 ára hlynnt aðskilnaði ríkis og kirkju, en aðeins slétt 40% á aldrinum 60 ára og eldri. Einnig eru þeir sem búa í Reykjavík (á bilinu 64-65%) hlynntari aðskilnaði ríkis og kirkju en þeir sem búa á Norðurlandi (á bilinu 37-38%) eða Suðurlandi og Reykjanesi (um 47%).

Að lokum er afstaða til aðskilnaðar ríkis og kirkju breytileg eftir stjórnmálaskoðun. Kjósendur Pírata eru hlynntastir aðskilnaði, en ríflega 89% þeirra eru hlynntir. Meirihluti kjósenda Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Viðreisnar er einnig hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju. Aftur á móti er aðeins minnihluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Miðflokksins og Flokks fólksins hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju.

Svarendur voru 781 talsins og koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem er dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu. Svarendur eru af báðum kynjum, alls staðar að af landinu og á aldrinum 18-75 ára. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 18.- 25. janúar 2018.

Skýrsluna í heild sinni má nálgast hér.

Aðrar fréttir