Helmingur landsmanna hlynntur sölu á léttu áfengi í matvöruverslunum

Heim / Fréttir / Helmingur landsmanna hlynntur sölu á léttu áfengi í matvöruverslunum

Rétt tæplega helmingur landsmanna er hlynntur sölu á léttu áfengi í matvöruverslunum á Íslandi. Þetta er nokkurn vegin í takt við fyrri mælingar en frá 2022 hefur um helmingur landsmanna verið þessu hlynntur.

Á hinn bóginn er meira en helmingur landsmanna andvígur sölu á sterku áfengi í matvöruverslunum þó dregið hafi úr andstöðunni frá því sem mest var 2017 og 2018 þegar um 74% voru því andvíg.

Ítarlegri skýrslu má finna með því að smella hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 967, en þeir eru alls staðar að af landinu 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 2. til 13. febrúar 2024.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir