Mikill meirihluti telur fjölda flóttafólks of mikinn

Heim / Fréttir / Mikill meirihluti telur fjölda flóttafólks of mikinn

Mikill meiri hluti landsmanna finnst fjöldi flóttafólks sem fær hæli á Íslandi of mikill, eða þrír af hverjum fimm og er þetta í takt við niðurstöður úr mælingu frá september 2023. En einmitt í þeirri mælingu kom fram töluverð viðhorfsbreyting á meðal landsmanna til fjölda flóttafólks sem fær hæli á Íslandi þar sem hlutfall þeirra sem telja fjöldann of mikinn tvöfaldaðist.

Ítarlegri skýrslu má finna með því að smella hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 967, en þeir eru alls staðar að af landinu 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 2. til 13. febrúar 2024.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir