Hreyfing á fylgi flokka

Heim / Fréttir / Hreyfing á fylgi flokka

Maskína spurði hvaða flokk fólk myndi kjósa í dag og hvaða flokk það kaus í síðustu kosningum. Þetta er forvitnilegt í ljósi umræðna sex þingmanna á Klaustri í lok nóvember. Innan við helmingur þeirra sem segjast hafa kosið Miðflokkinn í síðustu kosningum ætlar að kjósa hann aftur nú, eða tæplega 49%. Rúmlega 59% þeirra sem kusu Flokk fólksins í síðustu kosningum myndu kjósa hann aftur nú. En nokkra athygli vekur að næstum sama hlutfall eða tæplega 61% þeirra sem kusu Vinstrihreyfinguna – grænt framboð síðast myndi kjósa flokkinn aftur nú, en ekki þarf að taka fram að enginn þingmaður þess flokks var á Klaustri umrætt kvöld. Hæst hlutfall kjósenda Viðreisnar myndi kjósa flokkinn aftur nú, eða rúmlega 92% en 82-85% kjósenda hinna flokkanna, Framsóknarflokks, Samfylkingar, Pírata og Sjálfstæðisflokksins.

Greinilegt er að kjósendur þeirra þriggja flokka sem ætla í mestum mæli að kjósa aðra flokka en þann sem þeir kusu síðast eru nokkuð ráðvilltir, því 19-25% þeirra segjast ekki vita hvaða flokk þeir myndu kjósa nú. En hvað ætla þeir að kjósa sem hafa yfirgefið þann flokk sem kosinn var fyrir ári? Af öllum fyrrverandi kjósendum Flokks fólksins ætla þeir helst að kjósa Pírata (tæplega 15%), Viðreisn (rösklega 11%) og Framsóknarflokkinn (7,4%). Fyrrverandi kjósendur Miðflokksins myndu nú helst kjósa Flokk fólksins (16,3%), Framsóknarflokkinn (16,3%) og Sjálfstæðisflokkinn (11,6%). Fyrrverandi kjósendur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hyggjast að langstærstum hluta kjósa Samfylkinguna, eða 21,5% en rösklega 10% myndu kjósa Pírata nú.

Samkvæmt þessari könnun Maskínu myndu hvorki Miðflokkurinn né Flokkur fólksins koma frambjóðendum inn á þing þar sem þeir fengju báðir innan við 5%. Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin mælast með nánast sama fylgi (19-20%) og næstir koma Píratar og Vinstrihreyfingin – grænt framboð með tæplega 15% fylgi. Viðreisn er ekki langt undan með rúmlega 13% fylgi og Framsóknarflokkurinn með tæplega 9%.

Svarendur voru 1.311 talsins og komu úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu. Svarendur eru af báðum kynjum, alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu. Könnunin fór fram dagana 30. nóvember – 3. desember 2018.

Skýrsluna í PDF formi má nálgast hér.

Aðrar fréttir