20% ánægð með störf Einars Þorsteinssonar

Heim / Fréttir / 20% ánægð með störf Einars Þorsteinssonar

Í nýútkomnum Borgarvita Maskínu var í fyrsta sinn spurt um ánægju borgarbúa með störf Einars Þorsteinssonar sem borgarstjóra. Einar settist í stól borgarstjóra í byrjun árs og tók þar við af Degi B Eggertssyni sem hafði vermt stólinn síðastliðin 10 ár. 20% eru ánægð með störf Einars. Það sem vekur athygli er að færri eru ánægðir með störf Einars en forvera hans en mun færri óánægðir með störf Einars en Dags.

Næsti Borgarviti Maskínu verður birtur í ágúst og verður forvitnilegt að sjá hvort að viðhorf borgarbúa til hins nýja borgarstjóra mni breytast þegar meiri reynsla verður komin á hann í starfi.

Ítarlegri niðurstöður um Borgarvita Maskínu er að finna í pdf-skýrslu hér.

Við munum halda áfram að fjalla um niðurstöður Borgarvita Maskínu á næstu dögum.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 699, en þeir eru á aldrinum 18 ára og eldri og búsettir í Reykjavík. Könnunin fór fram 22. mars – 11. apríl 2024.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar til helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er

Aðrar fréttir