Um prósentustig skilur að fylgi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar

Heim / Fréttir / Um prósentustig skilur að fylgi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar

Maskína kannar fylgi stjórnmálaflokkanna á landsvísu mánaðarlega og nú liggur fyrir mæling ágústmánaðar. Mesta sveiflan er í fylgi Sjálfstæðisflokksins, sem er með 3–4 prósentustigum minna fylgi en í júlí, og fylgi Sósíalistaflokksins sem mælist með rúmlega 2 prósentustigum meira fylgi en í júlímánuði.

Framsókn „andar ofan í hálsmál“ Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú, sem áður, stærsti flokkurinn á landsvísu en þó með 3–4 prósentustigum minna fylgi en í síðasta mánuði eða um 21%. Nú ber svo við að Framsóknarflokkurinn mælist með aðeins rúmlega 1 prósentustigi minna fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn eða tæplega 20%. Aldrei hefur munurinn á þessum tveimur flokkum verið minni í könnunum Maskínu. Fylgi þriðja ríkisstjórnarflokksins, Vinstri grænna, helst óbreytt á milli mánaða eða 7–8%. Bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri grænir eru undir kjörfylgi sínu en Framsóknarflokkurinn er rúmlega 2 prósentustigum stærri nú en í síðustu kosningum.

Píratar og Samfylking yfir kjörfylgi sínu
Samfylkingin mælist nú með um 13% fylgi sem er meira en flokkurinn var með í síðasta mánuði og einnig 3 prósentustigum yfir því fylgi sem flokkurinn uppskar í síðustu Alþingiskosningum. Píratar mælast nú með rétt um 14% fylgi sem er talsvert meira en þeir fengu í síðustu kosningum.

Sósíalistaflokkurinn hástökkvari mánaðarins
Það er Sósíalistaflokkurinn sem bætir við sig mestu fylgi á milli mánaða en flokkurinn er nú með ríflega 7% fylgi. Það er talsvert meira en flokkurinn fékk í síðustu kosningum þegar rétt um 4% kjósenda setti X við J.

Miðflokkurinn og Flokkur fólksins dala – fylgi Viðreisnar óbreytt
Bæði Miðflokkurinn og Flokkur fólksins eru nú minni en í undanförnum mælingum. Báðir flokkarnir eru með 4–5% fylgi. Fylgi Flokks fólksins hefur nánast helmingast frá síðustu kosningum þegar flokkurinn uppskar tæplega 9% upp úr kjörkössunum. Þá er fylgi Viðreisnar óbreytt, en það hefur verið á bilinu 8–9% frá sl. vori.

Ítarlegri niðurstöður er að finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 890, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 12. til 17. ágúst 2022.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir