Enn skiptar skoðanir um sölu áfengis í matvöruverslunum

Heim / Fréttir / Enn skiptar skoðanir um sölu áfengis í matvöruverslunum

Meiri stuðningur en mótstaða er meðal Íslendinga við sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum. Mótstaða við sölu á sterku áfengi í matvöruverslunum er hinsvegar töluvert meiri. Lítil breyting er á afstöðu frá síðustu mælingu.

Rúmlega 44% eru hlynnt sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslunum en rúmlega 40% eru andvíg. Þeir sem eru andvígir sölu á sterku áfengi í matvöruverslunum eru hinsvegar rúmlega 67% en aðeins 18% eru hlynnt.

Töluverður munur er á stuðningi við sölu á áfengi í matvöruverslunum eftir því hvaða stjórnmálaflokk fólk myndi kjósa ef gengið væri til kosninga í dag. Þeir sem myndu kjósa Pírata eru hlynntastir sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslunum eða um 64%. Þeir sem myndu kjósa Miðflokkinn eru andvígastir en aðeins tæplega 24% þeirra eru hlynnt á meðan rúmlega 66% þeirra eru andvíg sölu á bjór og rúmlega 68% andvíg sölu á léttvíni í matvöruverslunum.

Enn sem áður eru karlar hlynntari sölu á öllu áfengi í matvöruverslunum en konur. Mestur er munurinn á stuðningi við sölu á sterku áfengi í matvöruverslunum en þar eru 24% karla hlynnt samanborið við tæplega 9% kvenna.

Aldur hefur einnig áhrif á stuðning við sölu á áfengi í matvöruverslunum. Því yngri sem svarendur eru þeim mun hlynntari eru þeir sölu á áfengi þar. Yngstu svarendur (18-29 ára) eru í öllum tilfellum hlynntastir sölu á áfengi í matvöruverslunum en þeir elstu (60 ára og eldri) er í öllum tilfellum andvígastir.

 

Svarendur voru 859 talsins, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem er dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu. Svarendur eru af báðum kynjum, alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu samkvæmt Þjóðskrá ogendurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 9. til 23. september 2019.

Smelltu hér til að skoða niðurstöður.

Aðrar fréttir