MINNA EN HELMINGUR ÍSLENDINGA HLYNNTUR VOPNAÐRI LÖGREGLU Á FJÖLDASAMKOMUM

Heim / Fréttir / MINNA EN HELMINGUR ÍSLENDINGA HLYNNTUR VOPNAÐRI LÖGREGLU Á FJÖLDASAMKOMUM

Ríflega 47% Íslendinga eru hlynnt því að vopnaðir lögreglumenn séu sýnilegir á fjöldasamkomum á Íslandi en rúmlega 34% eru því andvíg. Spurt var „Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu því að vopnaðir lögreglumenn séu sýnilegir á fjöldasamkomum á Íslandi?“.

Íbúar Suðurlands, Reykjaness, Vesturlands og Vestfjarða eru hlynntari vopnaðri lögreglu en íbúar annars staðar á landinu, eða meira en 60% íbúa þessara landshluta á móti t.d. rösklega 37% Reykvíkinga. Þá er tekjulægsti hópurinn sömuleiðis hlynntari vopnaburði lögreglu en aðrir tekjuhópar og þeir sem hafa háskólamenntun eru mun andvígari en þeir sem hafa minni menntun.

Töluverður munur er á viðhorfi til sýnilegra vopnaðra lögreglumanna á fjöldasamkomum eftir stjórnmálaskoðun. Meira en þrír af hverjum fjórum kjósendum Sjálfstæðisflokksins eru hlynntir vopnaburðinum en tveir af hverjum þremur kjósendum Framsóknarflokksins og Viðreisnar. Á hinn bóginn eru einungis rösklega 14% kjósenda Pírata hlynnt vopnaburði lögreglu á fjöldasamkomum.

Einnig var spurt „Hversu jákvæð(ur) eða neikvæð(ur) ertu gagnvart lögreglunni?“ og „Myndir þú upplifa þig öruggari eða óöruggari ef það væri vopnuð lögregla á fjöldasamkomu á Íslandi sem þú værir staddur/stödd á?“. Naumlega 88% eru jákvæð gagnvart lögreglunni og stærri hluti þeirra er hlynntur vopnaburði. Næstum helmingur svarenda myndi upplifa sig öruggari ef það væri vopnuð lögregla á fjöldasamkomu á Íslandi sem þeir væru staddir á og næstum 85% þeirra er hlynnt því að hafa vopnaða lögreglumenn sýnilega á fjöldasamkomum.

Svarendur voru 1046 talsins, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem er dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu. Svarendur eru af báðum kynjum, alls staðar að af landinu og á aldrinum 18-75 ára. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 16. til 19. júní 2017.

Skýrsluna í heild sinni má nálgast hér.

Aðrar fréttir