Meirihluti landsmanna á ónegldum dekkjum

Heim / Fréttir / Meirihluti landsmanna á ónegldum dekkjum

Nú þegar stormar og él ganga yfir landið er áhugavert að líta til niðurstöðu könnunar Maskínu um dekkjakost landsmanna í vetrarfærðinni. Nú í vetur aka 53% þjóðarinnar á ónegldum vetrardekkjum (heilsársdekkjum) og rúm 46% á negldum vetrardekkjum. Þá hefur tæpt 1% ekki fyrir því að skipta yfir á vetrardekk og ekur á sumardekkjum yfir veturinn.

Mikill munur er á dekkjanotkun bílstjóra á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni en 71% íbúa landsbyggðarinnar aka á negldum vetrardekkjum, samanborið við 32% íbúa höfuðborgarsvæðisins. Þá aka 67% íbúa höfuðborgarsvæðisins á ónegldum vetrardekkjum, samanborið við 29% á landsbyggðinni.

Ítarlegri niðurstöður er að finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 937, en þeir eru alls staðar að af landinu 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 3. til 7. nóvember 2023.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir