Eitt af viðfangsefnum núverandi ríkisstjórnar eru málefni útlendinga. Sitt sýnist hverjum í þessum málaflokki eins og algengt er. Maskína lagði spurningu fyrir almenning um hvernig ríkisstjórninni hefði staðið sig þegar kemur að málefnum útlendinga á kjörtímabilinu og sýndu niðurstöðurnar að um fjóðrungur taldi hana hafa staðið sig vel en tæplega helmingur illa. Í sömu könnun var borin upp spurning um hvort aðspurðir væru hlynntir eða andvígir móttökuskólum fyrir börn af erlendum upprunum og sýndu niðurstöðurnar að 2 af hverjum þremur eru hlynntir slíkum skólum.
Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 6.019, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram frá 25. febrúar til 3. mars 2026.
Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

