Núna þegar um 18 mánuðir eru liðnir af kjörtímabilinu lék Maskínu forvitni á að vita hvernig almenningur metur frammistöðu ráðherra í ríkistjórn Kristrúnar Frostadóttur. Hver hefur staðið sig best og hver hefur staðið sig verst?
Flestir svarendur töldu að enginn einn ráðherra hefði staðið sig best það sem af er kjörtímabilinu eða um þriðjungur aðspurðra. Þrátt fyrir það voru langt flestir eða um 21% sem sögðu forsætisráðherrann, Kristrúnu Frostadóttur, hafa staðið sig best. Næstu ráðherrar á eftir voru Inga Sæland og Þorbjörg Sigríður en ríflega 10% telja þær hafa staðið sig best. Fæstir nefndu Eyjólf Ármannsson.
Þegar horft er til þess hvaða ráðherra hafi staðið sig verst á kjörtímabilinu áttu fleiri auðvelt með að mynda sér skoðun og því aðeins 18% sem taldi engan einn ráðherra hafa staðið sig verst. Fjórðungur svarenda sagði Ingu Sæland hafa staðið sig verst og þar á eftir var Þorgerður Katrín en um 20% telja hana hafa staðið sig vert allra ráðherra á kjörtímabilinu. Fæstir töldu Þorbjörgu Sigríði hafa staðið sig verst.
Ítarlegri niðurstöður er að finna í pdf-skýrslu hér.
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 969, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram frá 25. til 31. mars 2026.
Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.


