Hefur staðan í landsmálunum áhrif á sveitastjórnarkosningarnar?

Heim / Fréttir / Hefur staðan í landsmálunum áhrif á sveitastjórnarkosningarnar?

Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna hefur Maskína lagt ýmsar áhugaverðar spurningar fyrir almenning um ýmislegt sem snýr að því hvernig fólk velur að ráðstafa atkvæði sínu á kosningadaginn.  Hér er fjallað um könnun sem aðeins var lögð fyrir Reykjavíkinga.

Tæplega þriðjungur þeirra segir að staða landsmálanna hafi mikil áhrif á það hvaða flokk það komi til með að kjósa í þessum sveitarstjórnarkosningum en rúmlega 40% segja það hafa lítil eða engin áhrif. Konur sögðu í meiri mæli en karlar að staðan í landsmálunum hefði áhrif á hvernig þær ætli sér að kjósa í sveitarstjórnarkosningunum. Það sama má segja um yngri hópa kjósenda, 39 ára og yngri, en þeir horfa í ríkari mæli til stöðu landsmálanna í aðdraganda þessara kosninga. Þegar niðurstöðurnar eru rýndar eftir stjórnmálaskoðun kemur fram að staða landmálanna hefur mest áhrif á afstöðu kjósenda Pírata og Sósíalistaflokksins.

Ítarlegri niðurstöður um þetta og fleira er að finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.012, en þeir eru á aldrinum 18 ára og eldri og búsettir í Reykjavík. Könnunin fór fram 6. til 11. maí 2022.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðir eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar til helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir