Fleygiferð á fylginu eftir stjórnarslit

Heim / Fréttir / Fleygiferð á fylginu eftir stjórnarslit

Í dag birti Maskína fyrstu könnun sína á fylgi flokkanna eftir stjórnarslit og á myndinni hér að neðan má bæði sjá fylgið fyrir og eftir stjórnarslit auk þess sem fram kemur hvert fylgi flokkanna er samkvæmt öllum mælingum október mánaðar.

Ljóst er að mikil spenna er framundan í stuttri og snarpri kosningabaráttu.


Ítarlegri niðurstöður má nálgast í pdf-skýrslu hér þar að auki er hér hlekkur á mælaborð þar sem hægt er að skoða fylgi flokkanna aftur í tímann, setja saman sína ríkisstjórn samkvæmt núverandi fylgi flokkanna og skoða frá hverjum og hvert fylgið er að renna.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.772, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 2. til 18. október 2024.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir