Hefur almenningur áhyggjur af fullveldi Íslands við inngöngu í ESB?

Home / Fréttir / Hefur almenningur áhyggjur af fullveldi Íslands við inngöngu í ESB?

Það er spennandi að vinna við kannanir meðal almennings þegar líður að kosningum því höfum við Maskínuliðar fengið að kynnast vel á undanförnum árum enda óvenjumargar kosningar verið haldnar. Kosningar til Alþingis, sveitarstjórna, forseta og nú næst um áframhaldandi aðildarviðræður að ESB. Allar þessar kosningar gefa okkur tækifæri til að leggja áhugaverðar spurningar fyrir þjóðina og ein af þeim spurningum sem lögð var fyrir núna í ágúst var viðhorf fólks til fullveldis Íslands við inngögnu í Evrópusambandið. Niðurstöðurnar draga upp afar áhugaverð mynd þar sem um fjórðungur aðspurðra hefur mjög miklar áhyggjur af fullveldi landsins og annar fjórðungur hefur engar áhyggjur. Þessar niðurstöður eru áhugaverðar í ljósi þess hversu mjótt er á munum um afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Niðurstöðurnar sýna okkur að um 40% hafa miklar áhyggjur af fullveldi Íslands ef af inngöngu verður en tæplega 47% hafa litlar eða engar áhyggjur af því.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.019 en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram frá 21. til 25. ágúst 2026.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.