Aldrei fleiri á ónegldum vetrardekkjum

Heim / Fréttir / Aldrei fleiri á ónegldum vetrardekkjum

Allnokkur umræða hefur verið um notkun nagladekkja að undanförnu og hver áhrif notkun þeirra eru á bæði loftgæði og umferðaröryggi. Maskína hefur frá árinu 2020 spurt lansdmenn um vetrardekkjanotkun þeirra og í ár má sjá nokkra breytingu.

Ríflega helmingur landsmanna á ónegldum vetrardekkjum
Niðurstöðurnar sýna að ríflega 54% aðspurðra aka á ónegldum vetrardekkjum yfir veturinn og hefur þeim fjölgað um 6 prósentustig á milli ára. Umtalsverðan mun er að sjá eftir búsetu fólks en rétt rúmlega 30% þeirra sem búa á höfuðborgarsvæðinu aka um á nagladekkjum yfir veturinn en íbúar á landsbyggðinni nota þau í mun meiri mæli (68%). Mest er notkunin meðal Norðlendinga en rétt um 83% þeirra aka á nagladekkjum yfir veturinn.

Ítarlegri niðurstöður er pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 950, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 11. til 15. nóvember 2022.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir