Hveitibrauðsdögum ríkisstjórnarinnar lokið: óánægja með störf hennar mælist meiri en ánægja

Home / Fréttir / Hveitibrauðsdögum ríkisstjórnarinnar lokið: óánægja með störf hennar mælist meiri en ánægja

Á hverjum ársfjórðungi birtir Maskína mælingu yfir bæði ánægju og óánægju með störf ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu. Niðurstöður á fyrsta ársfjórðungi 2026 sýna að í fyrsta sinn frá því að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við völdum mælast fleiri óánægðir með störf hennar en ánægðir. Fækkað hefur um 12 prósentustig í hópi þeirra sem segjast ánægðir með störf ríkisstjórnarinar frá því sem mest var, en það var á þriðja ársfjórðungi 2025 þegar 48% voru ánægð. Nú eru það 36% sem eru þeirrar skoðunar. Á sama tíma hefur fjölgað jafnt og þétt í hópi þeirra sem eru óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar en í upphafi kjörtímabilsins voru 21% í þeim hópi en hefur nú fjölgað um 18 prósentustig eða í 39%. Til samanburðar sögðust 63% óánægð með störf síðustu ríkisstjórnar í lok kjörtímabilsins.

Þrátt fyrir að óánægja með ríkisstjórnina sé að aukast er óánægja með störf stjórnarandstöðunnar einnig mjög mikil og ánægja með hennar störf aðeins um 14% sem er 4 prósentustigum minna en í upphafi kjörtímabilsins. Þá mælist óánægja með störf stjórnarandstöðunnar nú 54% og hefur dregist nokkuð saman frá því að hún náði hápunkti á þriðja ársfjórðungi 2025 þegar hún mældist 62%.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.


Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 6.019, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram frá janúar til mars 2026.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.