Yfir sumartímann halda sólþyrstir íslendingar gjarnan af stað í útilegu og oft með það að markmiði að elta sólargeislana. Það hefur komið upp síðastliðin ár að veðurgæðunum er mjög misskipt og hafa íbúar norðan heiða og sérstaklega Austurlands fengið stærri skammt af sól og sumaryl en íbúar höfuðborgarsvæðsins. Sumarið í ár er engin undantekning.
Um mánaðarmótin júní/júlí lagði Maskína fyrir spurningu meðal sinna svarenda um hvort þeir væru með það á dagskrá að skella sér í útilegu eða væru jafnvel búnir að fara í útilegu. Niðurstöðurnar sýna að um helmingur svarenda var ýmist búinn að fara í útilegu eða var á leiðinni.
Nokkurn mun mátti sjá þegar niðurstöðurnar voru rýndar eftir aldri má sjá að yngri svarendur eru meira fyrir útilegur en þeir sem eldri eru.
Ítarlegri niðurstöðu má finna í pdf-skýrslu hér.
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.059 en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram frá 26. júní til 8. júlí 2026.
Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

