Um fjórðungur almennings ánægður með störf ríkisstjórnarinnar

Heim / Fréttir / Um fjórðungur almennings ánægður með störf ríkisstjórnarinnar

Ársfjórðungslega birtir Maskína niðurstöður um hversu mikil ánægja mælist með störf annars vegar ríkisstjórnarinnar og hins vegar stjórnarandstöðunnar. Síðastliðna þrjá ársfjórðunga hefur um fjórðungur landsmanna verið ánægður með störf ríkisstjórnarinnar, en 26% eru ánægð með störf hennar á síðasta ársfjórðungi ársins. Mun fleiri eru óánægðir með störf hennar eða rösklega 42% nú í árslok.

Minni ánægja með störf stjórnarandstöðunnar
Mun færri eru ánægð með störf stjórnarandstöðunnar en ríkisstjórnarinnar, eða 14% á móti 26% sem ánægð eru með stjórnina, eins og áður sagði. Þó hefur ánægja með stjórnnarandstöðuna aukist frá síðasta ársfjórðungi um 2 prósentustig. Ánægja með störf stjórnarandstöðunnar mældist meiri fyrri part ársins þegar hún var 17-18%.

Ítarlegri niðurstöður er að finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 6.542, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram október til desember 2022.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir