Óánægja með störf ríkisstjórnarinnar eykst

Heim / Fréttir / Óánægja með störf ríkisstjórnarinnar eykst

Á ársfjórðungsfresti birtir Maskína niðurstöður um hversu mikil ánægja mælist með annars vegar störf ríkisstjórnarinnar og hins vegar með störf stjórnarandstöðunnar. Niðurstöður á fyrsta ársfjórðungi sýna að ánægja með störf ríkisstjórnarinnar dregst saman eftir að hafa haldist stöðug þrjá ársfjórðungana á undan.

Óánægjan aldrei mælst meiri
Á hinn bóginn hafa aldrei verið fleiri óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar. Á sléttu ári, eða frá fyrsta ársfjórðungi síðasta árs, hefur þeim sem segjast óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar fjölgað um 19 prósentustig og eru nú um 48%. Ónægja með störf ríkisstjórnarinnar, hefur síðastliðið ár, verið meiri en óánægja með störf stjórnarandstöðunnar. Þetta er talsverð breyting frá árinu á undan, 2021, og má draga þá ályktun að COVID-19 faraldurinn hafi þar eitthvað að segja.

Minni breytingar hjá stjórnarandstöðunni
Ánægja með störf stjórnarandstöðunnar hefur aukist lítillega og eru nú 15% sem segjast ánægð með störf hennar. Óánægjan hefur haldist stöðug síðastliðna tvo ársfjórðunga og mælist nú 37%,  í annað sinn, og er því sýnu minni en á þriðja ársfjórðungi síðasta ári þegar hún náði hámarki í 40%.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 4.929, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram janúar til mars 2023.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir