Maskína sendi frá sér síðustu könnun í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningar kvöldið fyrir kjördag, föstudaginn 15. maí. Niðurstöður kosninganna fóru ansi nærri niðurstöðum þessarar lokakönnunar, eða að meðaltali 0,87 prósentustigum. Mest var frávikið hjá Miðflokki og Sjálfstæðisflokki, 1,6 prósentustig, en minnst hjá Sósíalistaflokknum, 0,4 prósentustig, af þeim flokkum sem fengu fulltrúa kjörna í borgarstjórn.
Þessi nákvæmni í lokakönnuninni gefur sterklega til kynna að kjósendur hafi að mestu leyti verið búnir að taka ákvörðun sína fyrir kjördag, enda lítil hreyfing milli könnunar og endanlegra úrslita.
Related Posts


