Leiguþak mælist vel fyrir

Home / Fréttir / Leiguþak mælist vel fyrir

68% aðspurðra í nýlegri Maskínukönnun segjast hlynntir því að lög um leiguþak verði sett á. Þessar niðurstöður ríma vel við niðurstöður fyrri ára en Maskínu hefur lagt spurninguna fyrir síðastliðin 2 ár. Talsverðan mun er að sjá á afstöðu svarenda eftir kyni en konur eru í mun meiri mæli hlynntar lögum um leiguþak eða ríflega 82% þeirra en um 55% karla. Þá ,á einnig sjá mun á viðhorfi fólks eftir tekjum og menntunarstigi þar sem þeir sem lokið hafa lægra menntunarstigi og eru í lægri tekjuhópum eru í ríkara mæli hlynntir lögum um leiguþak.

Ítarlegri niðurstöður má sjá í pdf-skýrslu hér.

 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 947, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram frá 16. til 19. mars 2026.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.