Gríðarleg ánægja með Áramótaskaupið

Heim / Fréttir / Gríðarleg ánægja með Áramótaskaupið

Maskína hefur síðastliðin 12 ár spurt landann út í Áramótaskaupið. Í ár kemur í ljós að hann hefur ekki verið ánægðari á þessum 12 árum sem sýnir sig bæði í því aldrei hafa fleiri sagt skaupið vera gott og aldrei færri sem hafa þótt það slakt.

Eins og myndin hér fyrir neðan sýnir sveiflast ánægja landsmanna mikið á milli ára þegar kemur að skaupinu en árin 2013, 2020 og 2022 eru í sérflokki þar sem hlutfall ánægðra var yfir 80%, þá var hlutfall þeirra sem þótti skaupið slakt þessu þrjú sömu ár í algjöru lágmarki eða á bilinu 5–9%.

Ítarlegri niðurstöður er að finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 949, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 13. til 18. janúar 2022.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir