Í mánaðarlegri Maskínukönnun þar sem fylgi flokkanna á landsvísu kemur fram sjást nokkrar breytingar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur bætt við sig tæplega 3 prósentustigum á milli mánaða og mælist nú með tæplega 23% fylgi. Samfylkingin er áfram stærsti flokkurinn með um 25% fylgi sem breystist ekkert á milli mánaða, en nú mælist fylgi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar innan vikmarka.
Miðflokkurinn gefur lítillega eftir á milli mánaða og mælist nú með 14% fylgi en fylgi hans hefur minnkað jafn og þétt frá því það mældist um 22% í upphafi árs. Fylgi annarra flokka breytist lítið á milli mælinga.
Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér en einnig má finna niðurstöðurnar í Mælaborði Maskínu
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.705, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram frá 2. til 11. mars 2026.Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.


