Sjálfstæðisflokkurinn á uppleið – Samfylkingin áfram stærst flokka á landsvísu

Home / Fréttir / Sjálfstæðisflokkurinn á uppleið – Samfylkingin áfram stærst flokka á landsvísu

Mánaðarleg fylgismæling Maskínu er nú komin út fyrir apríl mánuð og sýnir að Samfylkinguna stærsta flokka en hún bætir við sig fylgi í fyrsta skipti frá því í spetember 2025. Samfylkingin mælist nú með tæplega 28% fylgi sem er rétt ríflega 2 prósentustigum meira en í síðasta mánuði. Samfylkingin hefur gefið eftir í öllum mælingum frá því í september en þá mældist fylgi hennar um 32%. Þá bætir Sjálfstæðisflokkurinn sömuleiðis við sig 2 prósentustigum frá Maskínukönnun síðasta mánaðar og mælist nú með 18%. Miðflokkurinn mælist þriðji stærsti flokkurinn með rúmlega 16%, hann hefur gefið jafnt og þétt eftir í könnunum Maskínu frá því í upphafi árs þegar hann fékk um 22%. Viðreisn mælist nú með 13% sem er um prósentustigi minna en í síðasta mánuði en mjög sambærilegt því fylgi sem flokkurinn hefur mælst með undanfarna mánuði. Fylgi annarra flokka breytist sáralítið eða ekkert  á milli mánaða.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér auk þess sem rýna má gaumgæfilega í niðurstöðurnar í Fylgismælaborði Maskínu hér.

 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.786, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram frá annars vegar 25. til 31. mars og hins vegar 8. til 16. apríl 2026.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.