Dregur úr stuðningi við veggjöld

Home / Fréttir / Dregur úr stuðningi við veggjöld

Maskína hefur frá árinu 2017 lagt reglulega fyrir spurningu um hug almennings til innheimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóðvega á Íslandi. Talsverðar breytingar má sjá á viðhorfi almennings á milli ára. Mjög hefur fækkað í hópi þeirra sem eru andvígir veggjöldum frá því að spurningin var fyrst borin upp árið 2017 þegar 56% svarenda var þeim andvígur og aðeins fjórðungur hlynntur. Samkvæmt nýjustu Maskínukönnun eru 37% hlynntir innheimtu veggjalda en 43% eru þeim andvíg.

Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar eftir búsetu svarenda kemur fram að mestur er stuðningurinn við innheimtu veggjalda meðal íbúa á Norðurlandi en í þeirra hópi eru 47% hlynntir þeim. 41% höfuðborgarbúa eru hlynntir veggjöldum en mest er andstaðan meðal íbúa á Suðurlandi og Reykjanesi en aðeins fjórðungur þeirra eru hlynntir veggjöldum.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 969, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram frá 25. til 31. mars 2026.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.