Viðhorf Íslendinga til Evrópusambandsins

Heim / Uncategorized @is / Viðhorf Íslendinga til Evrópusambandsins

MEIRIHLUTI ÍSLENDINGA VILL AÐ ÍSLAND HALDI ÁFRAM AÐILDARVIÐRÆÐUM VIÐ EVRÓPUSAMBANDIÐ

Tæplega 52% Íslendinga vilja að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið en tæplega 35% vilja að þeim verði slitið. Þá vilja tæplega 14% að hlé verði gert á viðræðunum. Hærra hlutfall karla en kvenna vill halda viðræðunum áfram, rúmlega 58% karla en tæplega 45% kvenna. Reykvíkingar og íbúar nágrannasveitafélaganna vilja í meiri mæli halda viðræðunum áfram en þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins, 55-58% á móti rösklega 43%. Næstum 63% þeirra sem eru með háskólapróf vilja halda viðræðunum áfram en 35-48% þeirra sem hafa styttri skólagöngu. Meirihluti kjósenda beggja stjórnarflokkanna vill slíta viðræðunum eða 51% Sjálfstæðismanna og 56% Framsóknarmanna. Á hinn bóginn vilja 28% Sjálfstæðismanna halda viðræðunum áfram og 22% Framsóknarmanna. Meirihluti kjósenda allra flokka í stjórnarandsstöðu vill halda viðræðunum áfram , 57% Pírata, 71% Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, 90% kjósenda Bjartrar framtíðar og 96% kjósenda Samfylkingarinnar.

 

MEIRIHLUTI ÍSLENDINGA VILL ÞJÓÐARATKVÆÐI UM FRAMHALD AÐILDARVIÐRÆÐNA

Um tveir af hverjum þremur kosningabærra Íslendinga vilja að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna en um þriðjungur vill hana ekki. Meira en þrír af hverjum fjórum sem eru yngri en 34 ára vilja þjóðaratkvæðagreiðslu en 60-64% þeirra sem eldri eru. Meirihluti kjósenda í öllum flokkum vill þjóðaratkvæðagreiðslu nema Framsóknarflokks þar eru fylkingarnar hnífjafnar, þ.e. 50% vilja þjóðaratkvæðagreiðslu og 50% vilja hana ekki.

 

MEIRIHLUTI ÍSLENDINGA VILL EKKI GANGA Í EVRÓPUSAMBANDIÐ

Næstum 51% Íslendinga er andvígt því að Ísland gangi í Evrópusambandið en rúmlega 28% eru því hlynnt. Fimmtungur er hvorki hlynntur né andvígur. Konur eru andvígari Evrópusambandsaðild en karlar, en rúmlega 55% kvenna eru andvíg en 46% karla. Um 44% fólks á höfuðborgarsvæðinu er andvígt Evrópusambandsaðild en rösklega 62% þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Andstaðan er mest í Norðvesturkjördæmi. Þeir sem hafa lægstu tekjurnar eru andvígari Evrópusambandsaðild en þeir sem hafa hærri tekjur. Þeir sem hafa háskólapróf eru hlynntari en þeir sem hafa styttri skólagöngu. Það kemur ekki á óvart að það eru kjósendur Samfylkingarinnar sem eru hlynntastir Evrópusambandsaðild en kjósendur Framsóknarflokksins andvígastir. 

 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu á netinu og fór fram dagana 27. september til 10. október 2013. Íslendingar á aldrinum 18-75 ára, af öllu landinu og báðum kynjum tóku þátt. Svarendur voru 783 og eru gögnin vigtuð m.t.t. réttrar skiptingar kyns, aldurs og búsetu í Þjóðskrá.

Aðrar fréttir