Kannanir meðal viðskiptavina
Við spyrjum viðskiptavini þína fyrir þig. Upplýsingar frá þeim sem kaupa eða þiggja þjónustu eru fyrirtækjum og stofnunum mjög mikilvægar. Maskína hefur mikla reynslu af þjónustukönnunum fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök.
Staðlaðar eða sérsniðnar þjónustukannanir
Maskína býður bæði staðlaðar og sérsniðnar þjónustukannanir. Þær eru lagaðar að þörfum fyrirtækis eða stofnunar sem vill kanna upplifun viðskiptavina eða þjónustuþega. Við framkvæmum kannanir fyrir fyrirtæki á einstaklingsmarkaði, fyrirtækjamarkaði og fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök.
Hnitmiðaðar spurningar sem nýtast í umbótum
Við mælum með að spurningarnar séu tiltölulega fáar og gagnlegar fyrir umbótastarf. Gott er að spyrja um almenna ánægju og tryggð viðskiptavina, auk þeirra þátta sem skipta fyrirtækið mestu máli. Best er að spyrja um afmarkaða þætti sem hægt er að bæta í framhaldinu og vilji er til að vinna með.
Samanburður og greiningar
Maskína er með stóran spurningabanka sem byggir á tugþúsundum svara. Þannig geta fyrirtæki og stofnanir borið sínar niðurstöður saman við aðra í svipuðum geira. Við endurtökum einnig þjónustukannanir sem aðrir hafa framkvæmt áður og fellum fyrri niðurstöður inn í skýrslu svo þróun sjáist á milli mælinga.
Niðurstöður sem nýtast strax
Í niðurstöðum kappkostum við að nýta gagnasafnið til fulls. Við notum einfaldar krosstöflur og flóknari greiningar, t.d. áhrifagreiningu sem sýnir hvaða þættir hafa mest áhrif á ánægju og tryggð viðskiptavina. Út frá því má útbúa forgangslista yfir þau atriði sem brýnast er að bæta.

