Starfsfólk

Ásmundur Pálsson

Ásmundur Pálsson sviðsstjóri gagnaöflunar

Ásmundur er með BSc gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur mikinn áhuga á framkvæmd kannana og tölfræðilegri úrvinnslu þeirra. Í upphafi hóf Ásmundur störf hjá Maskínu tímabundið sem lærlingur í vettvangsnámi sem hluti af sálfræðináminu en var fastráðinn eftir útskrift. Hann hefur starfað á ýmsum vettvangi, t.d. við blaðaútburð, sem verkamaður, lagerstarfsmaður, skósali, bílstjóri, lyklasmiður o.fl.

Hafðu samband við Ásmund með tölvupósti (asmundur (hjá) maskina.is) eða í síma 847 5537.

Birkir Örn Gretarsson

Birkir Örn Gretarsson sérfræðingur

Birkir Örn er með MSc í viðskiptahagfræði með áherslu á stærðfræði og tölfræði frá CBS í Kaupmannahöfn. Hann hefur mikinn áhuga á flestu tengdu tölum, gagnagreiningu og forritun ásamt því að vera mikill íþróttaunnandi. Birkir hefur starfað við kannanir og úrvinnslu þeirra frá námsárum sínum. Fyrst hjá Enalyzer í Danmörku og síðan hjá MMR fram að sameinginu við Maskínu árið 2022.

Hafðu samband við Birki í tölvupósti (birkir(hjá) maskina.is) eða í síma 659 5604.

Freyja Þorvaldar viðskiptastjóri

Freyja er með BSc gráðu í búsvísindum frá Lanbúnaðarháskóla Íslands. Hún stundaði auk þess nám við Háskólann á Hólum í reiðmennsku. Hún hefur brennandi áhuga á hrossarækt og stundar hana í hjáverkum auk útreiða. Allt sem viðkemur náttúruvísindum, blómum og fuglum á einnig hug hennar.

Hafðu samband við Freyju í tölvupósti (freyja (hjá) maskina.is) eða í síma 694 2562.

Hrafn Ingason sérfræðingur

Hrafn er með MSc gráðu í rannsóknarsálfræði frá Lundarháskóla í Svíþjóð og BSc gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur mikinn áhuga á hegðun og frammistöðu og hefur fulla trú á því að það sé alltaf hægt að gera betur (með hjálp góðra rannsókna og gagna). Hrafn hefur mest unnið með hegðun barna og unglinga, þar á meðal sem ráðgjafi á BUGL, sérkennari á leikskóla og sem persónulegur ráðgjafi.

Hafðu samband við Hrafn í tölvupósti (hrafn (hjá) maskina.is) eða í síma 844 0990.

Ingvar Þorsteinsson

Ingvar Þorsteinsson sérfræðingur

Ingvar er með BSc gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og MSc gráðu í markaðsfræði frá Clemson University í BNA. Hann hefur mikinn áhuga á og vinnur við úrvinnslu og framsetningu gagna. Ingvar kom til Maskínu frá MMR, þar sem hann starfaði í rúm þrjú ár fyrir samruna fyrirtækjanna en hann hefur einnig starfað sem ráðgjafi á geðdeild Landspítalans auk ýmissa annarra starfa.

Hafðu samband við Ingvar í tölvupósti (ingvar (hjá) maskina.is) eða í síma 847 6990.

Ólafur Þór Gylfason sviðsstjóri markaðsrannsókna

Ólafur er með MSc gráðu í rannsóknaraðferðum félagsvísinda (tölfræði) frá London School of Economics og BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Ólafur hefur yfir 30 ára reynslu af stjórnun rannsókna og hefur starfað sem rannsóknastjóri hjá Hagvangi (PricewaterhouseCoopers) og Associate Director í þróunarteymi Research International í London (nú TNS). Ólafur stofnaði MMR árið 2006 þar sem hann gegndi stöðu stöðu framkvæmdastjóra til ársins 2022 þegar félagið rann undir hatt Maskínu.

Hafðu samband við Ólaf í tölvupósti (olafur (hjá) maskina.is) eða í síma 659 5601.

Rakel Gyða Pálsdóttir viðskiptastjóri

Rakel er með MSc gráðu í markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík og BSc gráðu í sálfræði með stjórnmálafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands. Rakel hefur sérstakan áhuga á neytandahegðun og leggur áherslu á að hanna gæðakannanir sem gera stjórnendum kleift að taka upplýstar og góðar ákvarðanir. Samhliða námi sinnti Rakel meðal annars störfum sem aðstoðarkennari við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og hefur unnið að rannsóknum á sviði neytendahegðunar og sjálfbærni í samstarfi við Rannsóknarsetur í markaðsfræðum og neytendasálfræði við Háskólann í Reykjavík í kjölfar meistaranáms.

Hafðu samband við Rakel í tölvupósti (rakel (hjá) maskina.is) eða í síma 690 4942.

Thelma Rún Sveinsdóttir

Thelma Rún Sveinsdóttir Sérfræðingur

Thelma er með BA gráðu í félagsfræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands og MSc gráðu í félagslegum gagnavísindum frá Háskólanum í Kaupmannahöfn. Hún hefur víðtæka reynslu úr þjónustustörfum en þaðan sprettur áhugi á þjónusturannsóknum. Hún hefur jafnframt sérstakan áhuga á könnunum er snúa að einni mikilvægustu auðlind fyrirtækja, mannauðinum en markviss þekkingaröflun á þessum tveimur þáttum er lykillinn að velgengni fyrirtækja.

Hafðu samband við Thelmu í tölvupósti (thelma (hjá) maskina.is) eða í síma 695 3613.

Þóra Ásgeirsdóttir

Þóra Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri

Þóra lauk MBA prófi frá HÍ 2008. Hún er með BA próf í félags- og fjölmiðlafræði, einnig frá HÍ, og stundaði auk þess nám í hagnýtri fjölmiðlun. Þóra hefur starfað við kannanir frá árinu 1984, hjá Félagsvísindastofnun, Hagstofunni og Gallup. Þóra hefur áralanga reynslu í markaðs- og viðhorfsrannsóknum og ráðgjöf – meðal annars í öllum þáttum í undirbúningi og gerð rannsókna svo og framkvæmd þeirra – gerð spurningakannana og sölu á rannsóknum til fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka. Þóra rak eigið ráðgjafafyrirtæki, Kná ehf., á árunum 2006-2010 eða þar til hún stofnaði Maskínu árið 2010.

Hafðu samband við Þóru í tölvupósti (thora (hjá) maskina.is) eða í síma 896 4427.