Hundur á einu af hverjum fjórum heimilum landsins

Heim / Fréttir / Hundur á einu af hverjum fjórum heimilum landsins

Gæludýr skipa mikinn sess á heimilum margra. Hvort sem það eru hundar, kettir eða önnur gæludýr þá geta þau bæði létt lund eigenda sinna og veitt þeim mikinn félagsskap. Maskína var forvitin að kanna hvaða gæludýr leyndust á heimilum landsmanna.

Niðurstöðurnar voru skýrar 24%, eða hartnær 1 af hverjum 4, aðspurðra voru með hund á sínu heimili. Kisurnar fylgdu fast á hæla þeirra en 19% svarenda áttu kött. Önnur gæludýr voru nefnd talsvert sjaldnar.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.


Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 967, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 7. til 13. febrúar 2024.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir