Hvað segir almenningur um kjaradeilu flugmanna?

Home / Fréttir / Hvað segir almenningur um kjaradeilu flugmanna?

Kjaradeila flugmanna og Icelandair var framan af nokkuð áberandi í umfjöllun fjölmiðla en nú hefur dregið nokkuð úr henni. Maskínu lék forvitni að vita hver afstaða almennings væri til kjaradeilunnar og bar einfaldelga upp spurninguna hvort fólk styðji kjarabáráttu flugmanna. Svörin létu ekki á sér standa og svaraði rétt rúmlega helmingu neitandi eða 53% en 47% aðspurðra sagðist styðja flugmenn í sinni kjarabáráttu. Athygli vakti að þriðjungur þeirra sem fékk spurninguna gaf ekki upp afstöðu sína og valdi svarkostinn „veit ekki“.

Umtalsverður munur er á viðhorfi fólks eftir kyni en konur eru mun líklega en karlar til að styðja flugmenn. Þá er stuðningurinn einnig mun meiri meðal yngri hópa svarenda.

Hér má finna ítarlegri niðurstöður í pdf-skýrslu.

 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.041 en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram frá 2. til 11. júní 2026.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.