Borgarviti Maskínu: vaxandi óánægja með störf borgarstjóra

Home / Fréttir / Borgarviti Maskínu: vaxandi óánægja með störf borgarstjóra

Nú þegar styttist hraðbyr í sveitarstjórnarkosningar hækkar spennustigið víða og greinilegt að margir eru orðnir spenntir að sjá hvað kemur upp úr kjörkössunum um miðjan maí. Þrisvar á ári er Borgarviti Maskínu birtur en í honum er púlsinn tekinn á Reykvíkingum og viðhorf þeirra til starfa borgarstjórnar er krufin til mergjar. Nýjasti Borgarviti Maskínu er nú aðgengilegur og sýnir vaxandi óánægju borgarbúa bæði með störf borgarstjóra, störf meirihlutans og minnihlutans. Ánægja stendur ýmist í stað eða dregst örlítið saman.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.173, búsettir í Reykjavík og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar um kyn, aldur og menntun í Reykjavík. Könnunin fór fram dagana 16. til 19. mars 2026.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.