Samfylkingin gefur eftir í nýrri Maskínukönnun

Home / Fréttir / Samfylkingin gefur eftir í nýrri Maskínukönnun

Mánaðarleg fylgiskönnun Maskínu er nú komin í loftið og þar kemur fram að Samfylkingin gefur eftir um 2 prósentustig á milli mánaða og stendur nú í um 25% fylgi. Þrátt fyrir þetta mælist hún áfram stærsti flokkurinn. Miðflokkurinn er næsr stærstur með ríflega 18% og þar á eftir koma Sjálfstæðisflokkur og Viðreisn með 16% og 14%. Fylgi Framsóknar, sem nú hefur valið sér nýjan formann, hefur ekki haggast um nokkurra mánaðaskeið og stendur áfram í 7%

Ítarlegri niðurstöður er að finna í pdf- skýrslu hér. Þá má einnig skoða niðurstöðurnar ásamt þróun og fleiru í gagnvirku Mælaborði Maskínu hér.

 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 2.617, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 26. febrúar til 3. mars, 12. til 19. mars og 16. til 19. mars 2026.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.