Almenningur telur starfsöryggi og veikindarétt talsvert meiri hjá hinu opinbera en á einkamarkaði

Home / Fréttir / Almenningur telur starfsöryggi og veikindarétt talsvert meiri hjá hinu opinbera en á einkamarkaði

Reglulega kemur upp umræða um hvaða munur sé á starfsumhverfi þeirra sem starfa hjá hinu opinbera annars vegar eða á einkamarkaði hins vegar. Sú umræða náði talsverðu flugi þegar ráðherrar ríkisstjórnarinnar viðruðu þær hugmyndir að afnema áminningarskyldu opinberra starfsmanna. Sitt sýnist hverjum í þeim efnum eins og með svo margt. Þegar talað er um starfsumhverfi er ýmislegt undir, meðal annars starfsöryggi og veikindaréttur. Maskína var forvitin um hvaða augum almenningur lítur þessi tvö atriði.

Niðurstöðurnar sýndu að 71% aðspurðra telur veikindarétt meiri í opinbera geiranum og 22% segja hann vera sá sama. Ennþá meiri munur var á þegar spurt var um starfsöryggi. En þar segja 83% starfsöryggi meira í opinbera geiranum en 10% segja það vera eins.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.002, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 25. febrúar til 3. mars 2026.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.