53% hlynnt áframhaldandi aðildarviðræðum við ESB

Home / Fréttir / 53% hlynnt áframhaldandi aðildarviðræðum við ESB

Hér er birt könnun sem Maskína gerði fyrir Kryddsíldarþátt Sýnar.

Öllu jöfnu birtir Maskína ekki niðurstöður kannanna sem gerðar eru fyrir þriðja aðila nema að þeir hafi þegar birt þær. Mikill áhugi er á þessari könnun og því hefur Maskína fengið góðfúslegt leyfi Sýnar til að birta niðurstöður.

Niðurstöður könnunarinnar sýna að um 53% þeirra sem taka afstöðu í könnuninni eru hlynnt áframhaldandi aðildarviðræðum sem eru um 2 prósentustigum meira en þegar spurningin var borin upp ári áður.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.765, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 3. til 15. október 2025.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
Myndskreyting af súluriti
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.