Ánægja með störf ríkisstjórnarinnar vex lítillega milli ársfjórðunga

Home / Fréttir / Ánægja með störf ríkisstjórnarinnar vex lítillega milli ársfjórðunga

Maskína birtir á hverjum ársfjórðungi niðurstöður yfir ánægju almennings með störf bæði ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar. Þá er óánægja með störf þeirra sömuleiðis mæld. Niðurstöðurnar fyrir þriðja ársfjórðung 2025 liggja nú fyrir og sýna að ánægja með störf ríkisstjórnarinnar vex lítillega á milli ársfjórðunga og mælist nú 48%. Að sama skapi fjölgar þeim sem segjast óánægð með hennar störf um 4 prósentustig á milli ársfjórðunga. Ánægja með störf ríkisstjórnarinnar frá því í upphafi árs, sem var jafnframt fyrst ánægjumæling ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, hefur vaxið um 7 prósentustig eða úr 41% í 48% það sama má segja um óánægjuna sem vex einnig um 7 prósentustig úr 21% í 28%þ

Stjórnarandstaðan á, samkvæmt niðurstöðunum, nokkuð erfitt uppdráttar og hefur óánægju með hennar störf vaxið mjög frá því í upphafi árs og segjast nú 62% óánægð með hennar störf á sama tíma og aðeins 12% eru ánægð með störf stjórnarandstöðunnar. Þeir sem eru óánægðir með störf stjórnarandstöðunnar hefur fjölgað um ríflega þriðjung frá upphafi árs þegar 28% sögðust óánægð.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 6.515, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram frá júlí til september 2025.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.