Meiri hluti hlynntur Hvammsvirkjun

Home / Fréttir / Meiri hluti hlynntur Hvammsvirkjun

Landsvirkjun hefur um árabil unnið að undribúningi við Hvammsvirkjun en áformin hafa valdið talsverðum ágreiningi og deilum meðal íbúa og landeigenda á svæðinu. Maskínu lék því forvitni á að vita hver hugur almennings væri varðandi Hvammsvirkjun. Niðurstöðurnaar sýna að 59% aðspurðra er hlynntur Hvammsvirkjun en 21% andvígur framkvæmdinni. Andstöðuna er einna helst að finna meðal kjósenda Pírata, Sósíalista og VG. Mestur er stuðningurinn meðal kjósenda Framsóknarflokks, Miðflokks og Sjálfstæðisflokksins. Þá eru karlar í mun meira mæli hlynntir framkvæmdinni en konur, yfir 70% karlar eru hlynntur en aðeins um 40% kvenna eru á sömu skoðun.

Ítarlegri niðurstöður er að finna í pdf-skýrslu hér.

 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.423, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 18. til 21. ágúst 2025.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.