Borgarviti Maskínu kannar fylgi flokkanna í borginni

Heim / Fréttir / Borgarviti Maskínu kannar fylgi flokkanna í borginni

Nýr Borgarviti Maskínu hefur litið dagsins ljós en í honum er púlsinn tekinn á borgarbúum um ýmislegt sem snýr að borgarstjórn. Mestu breytingar í fylgi flokkanna er að sjá á fylgi Sjálfstæðisflokksins sem tapar 3 prósentustigum frá síðustu mælingu í mars og fylgi Viðreisnar sem bætir við sig 3 prósentustigum.

Auk þess að mæla fylgi flokkanna í borginni er spurt um þann borgarfulltrúa sem best hefur staðið sig á kjörtímabilinu, ánægju með störf bæði meirihlutans og minnihlutans auk ánægju með störf borgarstjóra.

Borgarvita Maskínu má finna í heild sinni í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 869, en þeir eru á aldrinum 18 ára og eldri og búsettir í Reykjavík. Könnunin fór fram 7. – 16. ágúst 2024.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar til helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er

Aðrar fréttir